ÉG HELD ÞVÍ FRAM..........

Að helmingur ökumanna séu undir áhrifum lyfja sem það ætti alls ekki að aka undir.  Ekki einu sinni að taka inn fyrir svefn.

Það hlýtur bara að vera horfiði í kringum ykkur. Það sem ég sá í dag var c.a þetta:

Rúmlega fertugur karlmaður sem hefur verið með bílpróf í 25 ár?? með kerru og tjaldvagn aftan í hvort öðru. Reynið ekki að sannfæra mig að hann sé bara örlítið að spara tíma.

Sextíu og fimm ára kona sem aldrei hefur lent í tjóni í órétti, með leifar af bensíndælu í bensínlokinu fyrir utan B og L.  Hún svaf bara aðein ílla í nótt blessunin. 

Bifhjólamaður á 1100cc, ca 250 kg Hondu á afturdekkinu upp Ártúnsbrekkuna, í gallabuxum. Hann...nei ég bara skil þetta ekki.

Unglingur stopp á gatnamótum með girðingarefni einhverskonar sem fór af kerrunni í gegnum afturgluggann. Hann náttúrulega er ný búinn í prófatörn.

 

 

KÆRU LANDAR:

EF ÞAÐ ER RAUÐUR ÞRÍHYRNINGUR Á GLASINU YKKAR, EKKI AKA, BARA EKKI AKA!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband