Föstudagur, 8.8.2008
Pissumálin hér heimafyrir.
Í þessu húsi búa tvær konur og þrír karlmenn, ég, sonurinn og hundurinn, konurnar sem eru í minni hluta eru konan mín og dóttir.
Konurnar hafa verið að kvarta undan slæmri umgengni hjá okkur þegar kemur að því að kasta þvagi.
Hundurinn kann ekki á hundalúguna og gerir þarfir sínar ekki á réttum stöðum.
Sonurinn harðneitar að nota kopp og segir hann bara fyrir dúkkur, tekur ekki í mál að minnka bleyjunotkun.
Sjálfur tók ég eftir miða sem var búið að líma á vegginn fyrir ofan klósettskálina. (Getur verið að hundurinn sé að reyna að nota skálina en geti ekki lokað setunni?)
Ég hef reynt að tala við soninn sem er 2 ára um hvernig hann geti bætt sig, en hann bendir bara á hurðina og segir loka setunni pabbi!!
þÆR ERU AÐ NÁ HONUM Á SITT BAND!!!
Athugasemdir
Það liggur fyrir Þér að tapa í Þessu máli.....sættu Þig við Það...
.
Gulli litli, 8.8.2008 kl. 01:51
Gulli Litli!!!
Ég er 38 ára gamall trúirði virkilega að ég loki ekki setunni??? Það hefur meira að sega verið logið upp á mig að ég gleymi stundum að sturta biður!!!!
Þetta er andlegt ofbeldi, ég þarf athvarf.
S. Lúther Gestsson, 8.8.2008 kl. 02:00
Andskot,,,,, Lúther það verður að fara í hernaðaraðgerðir,ég mæli með miða sem á stendur ""Muna að lyfta setunni upp""
Landi, 10.8.2008 kl. 11:01
Góð hugmynd. Mér var búið að detta í hug: "Þetta salerni er aðeins fyrir karlmenn"
S. Lúther Gestsson, 10.8.2008 kl. 23:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.