Föstudagur, 19.9.2008
Gáfur eru í genunum!!!!!
Þó sá nýfæddi hafi fæðst stór þá var ég alveg gáttaður þegar hann byrjaði allt í einu á að tala í kvöld, já gott fólk ekki nema rétt um viku gamall og byrjaður að tala!! Við sátum bara hérna í stofunni og vorum búnir að hreiðra um okkur í tungusófanum fyrir framan sjónvarpið, þá allt í einu segir sá stutti: KR!! KR!!
Við sko vorum ekki einu sinni að horfa á KR leik, og ég kom hvergi nærri þessu. Þetta var kannski ekkert eins og það væri verið að syngja í stúkunni í Frostaskjólinu, enn heyrðist samt greinilega. Ég alveg get svarið það að þetta var ekkert geisp eða rop. Bara KR!
Ég náði mynd af þessu
Skrítið hvað manni finnst bróðir hans sem er ekki nema 2 og hálfs árs vera eitthað orðin stór við hliðina á honum nýfædda. Guðbjörn farð þú og vaskaðu upp!!!
Maður verður alveg að passa sig að gera hann ekki afprýðisaman, þess vegna hef ég verið að taka þann eldri með mér í bíltúr og spjalla. Hann er nefnilega ekkert að kaupa alla þessa athygli sem sá nýfæddi fær.
Hér er svo mynd af þeim bræðrum þegar sá nýfæddi er að fara í skoðun, Guðbjörn stendur og kveður, dauðfeginn að fá að hafa pabba einan heima, Drífiði ykkur út sagði hann bara við mömmu sína.
Athugasemdir
Fallegir strákar sem þú átt og ótrúlega gáfaðir
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 19.9.2008 kl. 02:24
Börnin mín fengu ekki mínar gáfur...ég er með allar mínar ennþá..
Gulli litli, 20.9.2008 kl. 07:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.