Ég mótmæli mótmælum.

Það hefur tíðkast hér á þessu heimili að borga ekki stöð 2 yfir sumartímann. Sumartíminn er yfirleitt notaður í annað en sjónvarpsgláp. En í dag ákvað ég að sumarið væri liðið og því var stöð 2 hleypt í loftið. Við mikinn fögnuð dótturinnar.

Annars var ég að spá í hvort maður ætti að taka þátt í þessu brjálaði sem virðist  heltaka þjóðina og gera ekki neitt nema eitthvað neikvætt og tilkynna það svo sem flestum með að blogga um það.

Til dæmis gæti ég komið með stóra yfirlýsingu um að ég hefði skilað inn myndlyklinum vegna þess að einhver ákveðinn maður ætti stöðina, eða tilkynna að þetta væri síðasta bloggið mitt því að Davíð væri farinn að vinna hjá Mbl.

Ég hefði t.d getað látið meira til mín taka þegar Páll Magnússon fékk jepplinginn,  ég hefði hreinlega átt að hætta að horfa á fréttirnar.

Þetta minnir mig svolítið á þegar ég fór einu sinni í fýlu í 3 daga út í  ákveðinn mann og hafði mig allann við, enn maðurinn vissi aldrei af því.

Þegar ég fór svo að skoða málið betur þá bitnaði skapið ogg pirringurinn á mínum nánustu en ekki manninum sjálfum.

Njótið helgarinnar.


Rúllandi hamingja og gleði.

Alveg drulluskemmtilegt, og það er ekki oft sem manni er alveg sama þó mótherjin skori 3 mörk. Í stöðunni 4-2 bara brosti maður, einhvernveginn var það alveg ljóst allann tímann að þetta yrði jarðarför.

Ég heyrði skemmtilega sögu nú í hádeginu. En Óskar Örn skipti um skó við Takefusa í hálfleiK, þar sem Óskar var búinn að skora eitt bauðst hann til að skipta um skó við Takefusa þar sem hann þurfti nauðsynlega að skora til að keppa um markakóngstitilinn.

Enn eitthvað klikkaði þetta því Gunnar setti tvö mörk í seinni hálfleik í skónum hans Bjögga.


mbl.is Óskar Örn Hauksson: Hlýtur að hafa verið skemmtilegt fyrir áhorfendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannleg mistök hjá kennurum.

Ég man eftir allavega einu tilfelli þar sem ég kom með einkunnir heim þar sem ég var í sveit. Ég skilaði þeim ekki af mér fyrr en ég var búinn að yfirfara bókina hjá umsjónarkennaranum.

Ég var ekki búinn að lesa lengi yfir þegar ég sá að kennarinn hafði gert nokkur mistök, ég var náttúrulega ekkert að trufla hann yfir því og leiðrétti tölurnar.

Einhvern veginn fannst mér það ekkert grunsamlegt þó það væri búið að skrifa yfir sumar tölurnar, man nú ekki afsökunina sem ég gaf út af hverju bókin væri svona sjúskuð, en það hefur örugglega verið eitthvað afskaplega trúlegt sem lak úr munnvikunum hjá mér.


mbl.is Frekar mannrán en lélegar einkunnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað skiptir máli orðið?

Er það ekki að vera með og hafa gaman af þessu?  Það er í raun og veru enginn sigurvegari!.

Ég skil þessa umræðu ekki lengur um þetta FH lið, ég var nú á þeirra heimvelli í sumar þegar og sá mína menn valta yfir þá.  Gjörsamlega, algerlega yfirspila þá frá hægri til vinstri, upp og niður.

Það eina sem sendur eftir í minningunni fyrir utan öll þessi mörk sem við skoruðum var þessi Tryggvi Guðmundsson eða hvað hann heitir aftur,  vælandi í grasinu og allir byggingarkranarnir sem skyggðu á völlinn. (ef völl má kalla)

 


mbl.is FH meistari strax í kvöld?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmælisveisla.

Yngsti fjöldskyldumeðlimurinn hélt upp á 1 árs afmælið sitt um helgina. Það er með ólíkindum hvað tíminn flýfur hratt, man það eins og í gær þegar ég tók á móti honum fyrir ári síðan.

Það er óhætt að sega að manni finnist hann þroskast á ógnarhraða, þó hann sé ekki byrjaðurað ganga einsamall er ekki langt í það. Hann tekur 100m skriðgöngu á ótrulegum góðum tíma.

Um helgina hefur mér verið mikið hugsað til þess hvað ég er búinn að vera lánsamur að hafa átt kost á því að hafa  fylgt öllum börnunum mínum fjórum eftir og ég geri mér fyllilega grein fyrir því að það er ekkert sjálfsagt að eignast 4 börn sem öll eru fullhraust og heilbrigð. Það er bara guðsgjöf sem maður má aldrei gleyma að þakka fyrir.

Afmælisbarnið tók á móti gestum með bros á vör og lék á alls oddi.

myndir_ma_-j_n_2009_023.jpgmyndir_ma_-j_n_2009_034.jpgmyndir_ma_-j_n_2009_037.jpg

 


Þau eru fjölmörg verkefnin þessa dagana.

Það er svo mikið að gera íi að lesa og rífa kjaft á öðrum bloggum að maður má bara ekkert vera að því að uppfæra sitt eigið.

En eins og ég sagði frá um dagin rauk ég út í framkvæmdir við húsið hjá mér og ganga þær ágætlega en eins og sjá má af myndum þá eru engar smá framkvæmdir í gangi. Furðulegt að ég hafi sloppið við umhverfismat. 

Eitthvað var bloggvinur minn kær að efast um stærð og umfang framkvæmda en ég læt myndirnar tala sínu máli. Að sjálfsögðu er sonur minn ávallt tilbúinn til aðstoðar og hefur hann heilmikið gaman af.

myndir_ma_-j_n_2009_004.jpgmyndir_ma_-j_n_2009_007.jpgmyndir_ma_-j_n_2009_011.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 Ég sá fram á að mig vantaði kerru undir sleðann og hjólið  í vetur svo ég ákvað að skoða mig um á kerrumarkaðinum, það er skemmst frá því að sega að ég sat í einni taugahrúfu við eldhúsborðið þegar ég sá og heyrði vermiðann á nýjum kerrum í dag.

Því var önglað saman í efni og vinir og velunnarar látnir taka til í skúrnum hjá sér, einn afbragsgóður vinur var fenginn til að sýna mér hvernig ætti að sjóða, svo var bara hafist handa við að saga,slípa, skera og sjóða. 

Útkoman bara nokkuð glæsileg þó ég segi sjálfur frá, allavega er ég hundánægður með  gripinn sem kostar ekki einu sinni helming af nýrri kerru í dag og er miklu stærri.

myndir_ma_-j_n_2009_002.jpg

 

Hér neðst er svo mynd af Birgir Þór og Guðbirni sonum mínum að leggja af stað í hjólreiðatúren,  sá eldri var einmitt að halda upp á 15 ára afmælisdaginn sinn fyrir nokkrum dögum. Ef smellt er á myndina 2x þá sést mjög vel að þarna eru tveir yngri Lútherar.myndir_ma_-j_n_2009_006_908081.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef eitthvað er skemmtilegt myndaefni,  þá eru það bræðurnir yngstu í baði, eiginlega ætti maður að setja myndband inn með hljóði, en það er varla leggjandi á nokkurn mann. Hér sést einnig afar vel að um tvo litla Lúthera er að ræða. er 

myndir_ma_-j_n_2009_013.jpgmyndir_ma_-j_n_2009_018.jpgmyndir_ma_-j_n_2009_015.jpg

 


Framherjarnir í KR....

hefðu klárað þessi dauðafæri sem við fengum.
mbl.is Norðmenn sluppu fyrir horn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Abbabb..Enn einn KR ingurinn.

Glsæilegt.

Enn eins og allir sparkunnendur vita þá er þetta KR að þakka, fyrir utan dugnaðinn og eljusemina í honum sjálfum auðvitað. En við KR ingar eigum mikinn heiður af þessum glæsta ferli Eiðs Smára.

Nei, nei hann er ekki uppalinn KR ingur, en þegar hann var að stíga sem mest uppúr meiðslum og allir búnir að afskrifa hann, nema hann sjálfur náttúrulega þá kom KR og tók hann upp á sína arma og keyrði hann í það form sem þurfti.

Ekki orð um það meir.


mbl.is Eiður Smári skrifaði undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má maður vera svona góður?

Drengurinn var náttúrulega bara eins og kálfur að vori út um allt gras í gærkveldi. Kom aftur á völlinn þegar á þurfti og var að renna sér í menn og vinna boltann.

Gleðilegt viðtal við hann á KR vefnum þar sem hann sagðist hlakka til næsta sumars. Hann er sem sagt ekkert leiðinni með að hætta.

Áhangendur annara liða eru náttúrulega brjálaðir að venju yfir að hann er ekki uppalinn og hann taki pláss frá efnilegum piltum úr yngri flokkunun svo röfla þeir eins og gamlar kellingar yfir að afi hans Björgólfur sé búinn að setja fullt af peningum í KR og la,la,la,la.

Enn eins og heyrðist svo vel í stúkunni í gærkveldi þá:

ER OKKUR DRULLUSAMA UM ÖNNUR LIÐ, ÞVÍ VIÐ ERUM EINA SANNA STÓRVELDIÐ!!!!


mbl.is Björgólfur Takefusa: Þetta er alveg ógeðslega gaman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nágrannaslagur.

Nágrannar mínir hafa farið offari síðustu daga vegna hina ýmsu framkvæmda við hús sín. Svo var komið að ég gat ekki setið auðum höndum og horft á dugnað þeirra og eljusemi.

Því var farið inn í þvottahús, fundin vinnugalli, vettlingar og skór með stáltá. Í þessari munderingu var gengið hröðum skrefum inn í bílskúr og rifið út járnkall 3 stk skóflur, hjólbörur og annað smálegt þannig að granni stöðvaði vinnu við sitt hús til að fylgjast með ofsanum sem fylgdi þessu skaki.

Hva.... á bara að fara í stórframkvæmdir? og einhvernveginn fann ég fyrir efa í rödd hans, en það má vera vitleysa í mér.

Ég ætla að girða fyrir framan hús hjá mér sagði ég öruggið uppmálað. En sú skemmtilega tilviljun að granni beint á móti okkur var einmitt að gera hið sama. (Alger tilviljun.)

Í leiðinni fannst mér tilvalið að útbúa sérstakt kerru/tjaldvagnastæði við hliðina á húsinu og útbúa hlið en til þess þurfti að fjarlægja eins og 3 tré.

Granni við hliðina var einmitt að fjarlæga eitt tré um dagin og var hálfann daginn að grafa það upp. En ég snillingurinn kom bara með jeppann að húsinu, batt kaðal um trén og ók eins og greifi í burtu. Fyrir vikið virtist vera að ég væri að grafa fyrir sundlaug svo stórar voru holurnar. Þegar grannar sáu holurnar og trén á víðavangi með ræturnar út um allt og teppuðu umferð hjólastígsins sagði ég þeim að ég hefði verið aðeins um 40 mín að grafa þetta allt upp.

Þetta er bara spurning um verklag, sem ég einmitt virðist hafa í mun ríkari mæli enn grannar mínir tveir.  Ég laumaði mér út í garð annars nágrannans þegar hann var kominn örmagna upp í rúm eftir erfiði dagsins og mældi dýpt holunar sem staurarnir eiga að fara í hjá honum,  hann gróf 90 cm en ég ætla að sjálfsögðu að gera betur og gref 120cm.  Strax í fyrramálið verða 120 cm mínir gerðir opinberir fyrir þeim báðum með öllum tiltækum ráðum.  Eina sem setti strik í reikninginn hjá mér að þessi fríhelgi mín breyttist í vinnutörn svo framkvæmdir fara því ekki á eins miklum gríðarhraða og  tímaplan sagði upphaflega.

Myndavél heimilisins hefur verið biluð og því afar bagalegt að geta ekki birt myndir af herlegheitunum en það mun breytast afar fljótlega.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband