MIKLAR BREYTINGAR FYRIRHUGAÐAR.

Nú er svo komið að mikil pressa er á mér frá miklum fjölda fólks hvaðanæva úr heiminum um að það sé kominn tími fyrir útlitsbreytingar á þessari bloggsíðu.

Nú er svo komið að tæknimenn frá mér hafa sest niður með Moggatæknimönnum og ræða málin.

Heyrði ég síðast í þeim nú undir kvöld þar sem þeir hafa setið frá kl 15  á Argentínu Steikhúsi yfir teikningum og ferskum hugmyndum og eu málin langt komin.

Það er mér sérstök ánægja að verða við þeim fjölda beiðna um einhverjar breytingar. Þessi síða fær að meðaltali um 4 - 6 heimsóknir á degi hverjum, já hugsið ykkur og takk fyrir það.

Greinilegt er að mikil aukning er heimsóknum á degi hverjum, t.d komu hingað rétt rúmlega 8 manns síðastliðin sólarhring. Takk enn og aftur fyrir það.

Vil ég þakka mínum fjölmörgu aðdáendum fyrir tryggðina með að bjóða þeim að taka þátt í breytingum með að kommenta á hvað það sé helst sem þeir vilji sjá.

 

Tæknimenn mínir ásamt tæknimönnum Moggabloggs vilja biðja þá fjölmörgu sem kíkja hingað daglega fyrirframm afsökunar á óútskýranlegum truflunum sem gætu komið upp með breytingunum.

 

TAKK ENN OG AFTUR OG GUÐ BLESSI YKKUR ÖLL. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband