GRÍÐARLEG VIÐBRÖGÐ VIÐ FYRSTU BREYTINGUM SÍÐUNNAR.

Nú hafa fyrstu breytingarnar litið dagsins ljós á þessari síðu og viðbrögðin ekki látið á sér kræla, mikil umferð hefur verið í dag og reikna tæknimenn mínir að innlit á síðuna hafi tvöfaldast frá því í gær. Tæknimenn Moggabloggsins ásamt mínum mönnum teljast að 9 manns hafi litið hér inn frá því á miðnætti í gær. Þvílík viðbrögð.

TAKK, TAKK, KÆRA FÓLK. 

Enn eins og allflestir hafa tekið eftir er búið að setja inn niðurteljara til jóla vinstra megin á síðuna.  Vegna mikillar umferðar inn á síðuna eftir þessar fyrstu breytingu verður að fara hægt í frekari útlitsbreytingar, enn von er á frekari aðgerðum frá þessri 16 manna tækninefnd frekar í kvöld.

Enn endilega látið ykkar álit í ljós og segið hvað þið viljið sjá. Vinsamlega sýnið þó þolinmæði ef erfitt reynist að komast í kommentakerfið, það er eingöngu vegna þess mikla álags sem fylgir þessari aukningu á heimsóknum.

TAKK,TAKK 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Stórkostlegt - innilega til hamingju!

Markús frá Djúpalæk, 19.6.2008 kl. 17:46

2 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Takk, takk, Markús minn, ég er snortinn enn um leið svo glaður. Bíð eftir að hóað verði í mig í viðtal hjá Útvarp Sögu.

S. Lúther Gestsson, 20.6.2008 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband