ÉG Á STUNDUM EKKI EITT EINASTA......

Ég er svona einn af þeim stundum sem veit betur enn læknar og hjúkrunarfólk, þó svo ég hafi blessunarlega losnað við alvarleg veikindi undanfarið þá á ég það til eins og svo margir að fá svona smá kvilla.

Ég fékk rosalegt tak í bakið og upp fyrir mér rann sú stund þegar ég fékk síðast mjög vont í bakið þá labbaði ég út af bráðamóttökunni með kólöglegan skammt af Morfíni í æðakerfinu, man reyndar ekki mikið eftir því þegar konan ók mér heim.

þetta ætlaði ég ekki að endurtaka og ætlaði að lækna mig sjálfur. Ég varð mér út um gelpoka sem ég stakk í frysti, stakk honum svo beinfrosnum niður fyrir buxnastreng og lagðist með óhljóðum, eftir um hálftíma reif ég pokann upp ásamt hálfri rasskinninni.  HELV....Gelpokinn einhvernveginn.....já ég veit það ekki. Ég þakka guði fyrir að ég var ekki að kæla mig að framanverðunni.

 


Hjólreiðartúr.

Júlí 2008 032Við dóttirin fórum í hjólatúr í kvöld, undiritaður hefur ekki stigið á petala í mörg ár svo neinu nemur og var því valin svona frekar fáfarin leið að ég hélt hringur kringum Elliðaárdalinn. Dalurinn var náttúrlulega fullur af fólki og var maður næstum margsinnis dottin við það eitt að reyna að líta vel út.

Júlí 2008 029

Reyndar sýndist mér ég sjá einhverja Tour De France hjólakalla sem var nokkuð starsýnt á mig og á ég von á því að haft verði samband við mig í vikunni. Ég var nefnilega orðinn nokkuð lunkinn eftir ótrulega lítinn tíma.

Maður var orðinn nokkuð lúinn eftir kvöldið og var því laggst út af í sófanum þegar heim var komið og var konan sem reyndar er hjúkka fenginn til að nudda yfir skrokkinn í leit að gömlum íþróttameiðslum sem gætu hafa komið upp, aldrei of varlega farið. Talaði hún mikið um að dóttirinn hefði komið skellihlægandi heim en engu líkara en ég þyrfti súrefniskút, sem er mikill miskilningur hjá henni því þetta snýst mikið um að vera með réttu svipbrigðin þegar maður nálgast Júlí 2008 031fólk.

 

 Ef smellt er á myndirnar stækkar þetta allt um helming, sjáið einnig hverslags rosa græju kallinn er á, allavega 21 gír áfram Tin, blikk, gormar og allt að gerast.

Júlí 2008 028


Viljiði gjöra svo vel....

AÐ BYRJA EKKI EINA FERÐINA ENN!!!!
mbl.is Engir ísbirnir fundust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jens Guð og Jenný Anna og Stefán F. TIL SÖLU!!!!!

Jens Guð bloggvinur minn upplýsir það í Fréttablaðinu í dag að honum hafi verið boðnir gull og grænir skógar ef hann færði sig yfir í bloggheima Visir.is

Það er því ljóst að opnað hefur verið fyrir blogg - leikmannalista bloggheima íslands.  Ég hef það fyrir víst að vinsælum bloggurum á Vísi.is hafi að sama skapi verið boðið  að flytja sig yfir á Moggabloggið. Þar hafa að vísu ekki sömu gylliboðin verið boðið og Visismenn bjóða.

Ekki vildi Jens Guð moggabloggari upplýsa hvað hefði verið inn í tilboði Visis manna enn heyrst hafa raddir um Vespu, flatskjái,og heimabíó ásamt fríum mat á BSÍ, Jens hafði  fyrst farið að samningaborði Vísis manna þegar BSÍ var nefnt, enda á allra vitorði að Jens borðar þar sviðakjamma reglulega.

Áreiðanlegar heimildir eru fyrir að Vísis menn hafi talað við Jenný Önnu og Stéfán Friðrik ásamt Jens. En þessi 3 bloggarar eru efst á lista yfir Bloggara sem Vísir vill kaupa.

Já nú fara að gerast skemmtilegir snúningar í bloggheiminum því næsta víst er að Moggabloggarar vilja alls ekki að þessir einstaklingar færi sig yfir til Vísi.is, enda allir 3 óhemjuskemmtilegir bloggarar. Enn hvað er ekki til sölu í þessum heimi. 


Frá Höllu Rut bloggvini mínum.

18.7.2008 | 11:35

Hjálp bloggvinir / Ert þú til í að birta þetta á þinni síðu?

Elísabet Sigmarsdóttir er fædd með sjaldgæfan sjúkdóm sem kallast Encephalocele. Hún er sú eina á landinu sem hefur lifað hann af hingað til. Afleiðingar hans eru ýmsar. Henni fer stöðugt aftur og er í dag í hjólastól. Elísabet er búin að fara í u.þ.b. 60 aðgerðir. Oft var henni ekki hugað líf en er í dag lífsglöð og bjartsýn ung kona þrátt fyrir alla þá þröskulda sem lífið hefur sett henni.

Elísabet leitar nú eftir stuðningsmanneskju eða liðsveislu, eins og það er kallað. Liðsmaður er hugsaður sem félagslegur stuðningur og er um 16 tíma á mánuði að ræða. Er það samkomulagsatriði á milli Elísabetar og þess sem stuðninginn veitir hvernig þessum tíma er varðveitt og hvenær. 

Það er í raun Reykjavíkurborg sem á að útvega stuðningsmanneskju en þeim hefur ekki tekist það og hefur Elísabet verið án þessarar þjónustu í 7 mánuði.  Engin vilji er þar á bæ til að ganga lengra til að bjarga málunum. Þetta fellur ekki undir forgangsröð borgaryfirvalda. Það vitum við öll.  Þetta skiptir hinsvegar öllu máli fyrir tilveru Elísabetar Sigmarsdóttur.

Viðkomandi hlýtur laun fyrir en samt óskum við eftir manneskju sem hefur áhuga á því að láta gott af sér leiða og gefa nærveru sína og félagsskap til þessarar fallegur og hugrökku vinkonu minnar.

Ef þú hefur tök á því og tíma, gerðu þá góðverk. Ef þú hefur verið að hugsa í mörg ár að þú ættir kannski að gefa eitthvað til baka þá er núna tækifærið.

Síminn hjá Elísabetu er: 587 - 6278 og netfangið: liso@internet.is eða þú getur sent mér (Halla Rut) E-mail: halla@kjosehf.is ef þú vilt frekari upplýsingar.

Ég hér bið ykkur öll um að birta þetta á ykkar síðu sem færslu ef þið sjáið ykkur það fært.

Og svo er bara líka "nice" að senda henni kveðju: Elísabet.

Með samhug og kærleik

Halla Rut

 

elisabet_sigmarsdottir.jpg

 

 


Flokkur: Lífstíll | B

1000 ára gömul tré með lygasögu á bakinu, burtu með draslið.

Hef verið að spá í þessi tré sem eru út um allt, þá er ég aðalega að missa mig yfir þessum stóru trjám. Þessi stóru tré eru fyrir. Þau skyggja á sólina, útsýni, ræturnar eru að eyðileggja húsin og garða nærliggjandi húsa.

Enn ef maður fer á stúfana og grenslast fyrir um tilurð þessa trjá er yfirleitt lítið um svör.

Ég setti upp sparibrosið í gær og vippaði mér að garði nágrannans og spurði út í að ég held 12 metra langt tré sem ber líklega um 2 tonn af laufi. Góðan daginn sagði ég og tók þéttingsfast í hendina á granna, helvíti eru menn duglegir í garðinum sagði ég til að hrósa, maður á víst að hrósa þá líður viðmælendum vel. Þú veist að það er sól og blíða bak við stóra tréð hérna, alveg brakandi blíða sagði ég og horfði að mér fannst blíðlega á granna.

Enn granna fannst umræðuefnið greinilega leiðinlegt og leit ekki einu sinni upp að trénu. Þegar ég fór að spyrja um tréð vissi kallinn ekki neitt, hann vissi ekki heiti spýtunnar, aldur eða nokkurn skapaðann hlut.

Enn hann vissi að langafi hans  eða lang-lang afi hans hafði sett spýtuna niður fyrir langa löngu og því mætti ekki hreyfa við greininni. Enn þá voru menn að drekka óhreinan spýra og hugsuðu ekki framm í tímann sagði ég og ætlaði að útskýra mál mitt frekar, enn granni sagðist þurfa að sækja börnin og ég yrði bara að tala við frúna ef ég vildi fá tréð í burtu.

Þetta er nefnilega málið. Fólk veit ekkert um tré í dag og til að þurfa ekki að kosta tugum þúsunda til að hreinsa þessi tré í burtu felur fólk sitt á bak við að lang,lang afi eða þar af eldra fólk hafi gróðursett trén og það myndi fylgja íll álög ef tréð yrði rifið upp, kviknaði í eða allur gróður sem eftir yrði muni steindrepast og garðurinn myndi líta út eins og Sprengisandur á eftir.

 

Tré granna sem á svo fallega ættarsögu að manni vöknar um augun. Júlí 2008 025


Nýtt í albúmi

Eiithvað reitist inn af nýjum myndum í albúmið. sumarið 2008

ÉG HEF UNNIÐ AÐ LAUSN.

Við þekkjum öll þessar þrengingar sem hægja eiga á umferð, oft eru þær staddar í íbúðahverfum sem hámarkshraði er 30km.

Allt í góðu lagi með þær nema það vill oft verða misskilningur milli bílstjóra sem eru að mætast hver eigi að aka fyrst yfir. Einhver óskráð regla er að sá sem er nær fer yfir fyrst,  enn það er vill nefnilega valda misskilningi hver kom fyrstur að þrengingunni, miskilningurinn er oftast á milli ungs ökumanns og ökumanns sem komminn er á sjötugsaldurinn.

Ég hef LAUSN. Hún fellst í því að sá sem er á dýrari bíl fær forgang! Ökumenn sjá strax hvort bíllinn sem er verið að mæta er drusla eða einhver rándýr eðalkaggi. 

Hér er ég til að mynda á ferð í einmitt svona þrengingu, ég lít á bílinn sem ég er að mæta og ek svo rakleitt yfir á undan,  enda sést vel að bifreiðin sem ég er að mæta er bara drusla. 

Júlí 2008 003

Nú auðvitað getur komið upp sú staða að bilar eru á svipuðu verð, enn þá ætti sú regla að gilda að sá sem er með lægra bílalán ætti að fara á undan.

 


DETTI NÚ ALLAR DAUÐAR LÝS ÚR HÖFÐI MÍNU.

Ég hef oft velt mér upp úr kúluleik sem kallast golf, vill síður kalla þetta íþrótt. Enn þar sem félagar mínir hafa verið all harkalegir í aðgerðum til að fá mig á golfvöllinn ákvað ég að leggjast af fullri alvöru til að kynna mér þennan leik.

Til að  sýna öllum að mér var full alvara með að gerast golfari byrjaði ég á að  fjárfesta í Gólfblaðinu, enn það á víst að vera ofsalega flott tímarit um þessa ágætu íþrótt (kúluleik) og aðeins fyrir þá bestu.

Eftir aðeins um 3 mínutna lestur fóru strax að renna á mig 4 grímur, eftir um 5 og 1/2 mínutu fannst mér tímabært að fara í bókabúðina og skila tímaritinu. Lenti að vísu í um 15 mínutna þrefi við afgreiðslumannin um kauparétt og skilarétt.

En það sem við mér blasti eftir þennan stutta lestur var eftirfarandi:

Viðtal við Einhvern Ólaf Þór sem er búinn að æfa gólf í yfir 25 ár of segir að geta sín sé ennþá ekki nógu góð. (Það er bara of langur tími í ekki neitt fyrir mig)

Allir segast fá sér áfengan drykk á 18 holu. (ekki koma allir gangandi á völlinn?)

Það tekur lungann úr deginum að spila einn leik. (fokking einn leik).

Svo finnst mér svakalega dulafullt hvað öll golfblöð eru duglega að minna á MINNISTÖFLUR, HJARTASTUÐTÆKI, VERKJASTILLANDI OG KÆLISPREY. 

Fyrir utan hvað áfengisframleiðendum finnst þetta mikilvægur hópur til að auglýsa vörur sínar fyrir.

 

Nei ég get sagt ykkur það í fullri einlægni og þetta er ekki minnimáttarkennd, mér langar alls ekki til að gerast svona golfari. Held ég finni mér einhverja íþrótt til að dunda mér að í í ellinni. Júní 2008 146

 Júní 2008 149Júní 2008 150Júní 2008 147

 

 


Sá fyrsti farinn.

Kemur ekki á óvart. Þegar illa gengur er alltaf fyrsta skref að reka þjálfara þetta er þekkt alstaðar í heiminum. Ég held að Gunnar sé ágætur þjálfari gangi honum bara sem best í því sem hann tekur sér fyrir hendur, vonandi verður það eitthvað tengt boltanum.

Spurning hvað verður gert á skaganum, enn að vísu held ég að hann njóti friðhelgi á Akranesi.  


mbl.is Gunnari sagt upp sem þjálfara HK
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband