Þórsmörk 5-7 Júní

Ég og krakkarnir fengum brottfararleyfi frá húsmóðurinni á heimilinu síðustu helgi og ákváðum að skella okkur í helgarferð. Fyrir valinu varð Þórsmörk og vorum við afar heppinn með veður Sól á Laugardag en skýjað á Sunnudag.

Fórum á Föstudagskvöldið og vorum komin heim í kvöldmat á Sunnudag. Gistum í stóra skálanum fyrstu nóttina en fengum svo inni í litlu smáhýsi seinni nóttina. Frábær aðstaða í Húsadal. Það eru kominn allavega 3 ár síðan ég skrapp síðast í Þórmörkina og einhvernveginn er maður alltaf jafn hrifinn af fegurðinni þarna.

Lítið var í ánum og dugðu 35" dekk vel, en þó var töluvert farið að bæta í Krossá á Sunnudags eftirmiðdag. Hægt að stækka myndir með að smella 1-2 sinnum.

Heil helgi með börnunum sínum í íslenskri náttúru er eitthvað sem engin sólarlandaferð nær að toppa.

 

Allir ferðabúnir spennt og (spennt)

_orsmork_2009_002.jpg

 

Tekið fyrir neðan Lónið

_orsmork_2009_005.jpg

 

Ein af kvíslunum á leið innúr.

 _orsmork_2009_033.jpg

 

Hér erum við á leið yfir Krossá

_orsmork_2009_035.jpg

 

 

 Fundum heitan (volgan) pott til að busla í.

_orsmork_2009_027.jpg

 

Skruppum í litla göngutúra.

_orsmork_2009_024.jpg

 


Byrjaður að hjóla.

Þegar ég kom heim úr vinnunni í dag voru konan og krakkarnir farnir í útileigu. Ég tók því fram reiðhjólið og skokkaði hundurinn með mér allstórann hring í kringum Elliðadalinn. Alls tók þessi hringur ca 2 tíma og sýndi hundurinn mér það enn einu sinni að hann er í mikið betri formi en ég.

Allavega grunar mig að harðsperrurnar verði eitthvað að angra mig á morgun.

Annars er ég alltaf að finna fleiri og fleiri gíra á hjólinu, held svei mér þá að þetta hálfsjálfskipt.

Nú eru allir fjöldskyldu meðlimir komnir á hjól og ekkert til fyrirstöðu að ná sér í holla hreyfingu. Guðbjörn Smári lærði að hjóla á nýju Íslandsmeti um daginn, það er búið að taka meiri tíma að kenna honum að bremsa en að komast áfram og halda jafnvægi.

myndir_apr_l_2009_033_856048.jpg

 myndir_apr_l_2009_034_856050.jpg

 

 


Alkahólisminn getur verið hræðilegur ásýndar.

Menn hér á blogginu eru ansi fljótir að dæma bæði stúlkuna og foreldra hennar.

Þessi stúlka þarf alls ekki að vera slæm móðir.


mbl.is Þunguð kona ofurölvi í miðbænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KR með meistaratakta.

Ekki ætla ég að fara mikið ofaní saumana á þessum leik, enda hægt að lesa allt um hann í öllum blöðum ladnsins.

Við félagarnir vorum komnir snemma í hamborgara í Frostaskjólinu enda bestu borgararnir í bænum.

Einn beti leikur KR í sumar og Hafnfirsku stelpurnar heppnar að labba út með 3 stig.

Prinsinn lét alla standa á öndinni með skoti á 25m færi sem hafnaði í markverði FH og þaðan í stönginni. Ég held að Logi og Pétur þjálfarar hafi ekki haft minnsta grun um að tappinn gæti skotið svona skotum. Sjálfsagt er hann sjálfur enn að spá hvað hafi gerst. Spurning hvort hann þori að framkvæma svona gjörning aftur.

Fyrirsögnin hér á MBL er eins og hjá svo mörgum fjölmiðlum sem elska þegar KR tapar er kolröng. En greinilegt er að KR erá góðri leið með að taka titilinn í ár.

Fimleikastelpurnar nýttu sér mistök dómara þegar þeir skoruðu sigur markið enn ekki mistök KR. Einhvern veginn vorkenni ég alltaf dómurum sem missa stjórn á leikjum, þeir reyna allt en láta svo skapið hlaupa með sig í gönur.

 

Enn auðvitað létu stórmenni sjá sig í Frostaskjólinu eins og alltaf og að þessu sinni mátti sjá:

Guðjón Þórðarsson þjálfara Crew og Geir H. Haarde sitja hlið við hlið í stúkunni.


mbl.is FH nýtti sér mistök KR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég á mér von.

Í Fréttablaðinu á Laugardag er viðtal við sr. Guðna Már Harðarsson. Þar segir hann frá því að fyrir all mörgum árum keypti hann hlutabréf í fótboltafélaginu Stoke á Englandi.

Hann segir einnig frá því að hann hafi tekið peningana úr heimilis sjóðnum og ekki sagt konunni sinni frá því í mörg ár...Bíddu maðurinn er prestur, mega prestar þetta?  Ég hefði nú bara aldrei þorað að koma fram og sega þetta.

Enn hvað um það, nú virðist sem sé vera að kaupin kunni að skila sér og það með hagnaði. Að vísu segir Gunnar Gíslason fyrrum stjórnarmaður í Stoke að peningarnir séu fastir í banka Kaupþings í Luxemborg. Enn muni skila sér.

Enn viti hvað??? Jááá, ég keypti nefnilega fyrir mörgum árum líka hlut í knattspyrnufélagi og það sem er að það knattspyrnufélag er miiiiklu betra en Stoke. Nefnilega KR-SPORT.

Ég sagði konu minni frá því strax á sínum tíma enn stal ekki peningunum undan og laug eins og presturinn. Því veit ég að ég verð ríkur einn daginn, já, já það gerist einn daginn.


Kannski finnst eigandinn.

Ég er að velta því fyrir mér ef ég kaupi hjól þarna og svo þekkir einhver hjólið og segir það sitt hjól, segi ég þá bara: Nei, nei góurinn þú tapaðir eignaréttinum fyrst þú náðir ekki í hjólið á löggustöðina? Eða skila ég bara hjólinu og fer svo niður á stöð og segist vilja fá endurgreitt?
mbl.is Lögreglukórinn og stolnu hjólin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá pistill milli vinnutarna.

Síðustu dagar hafa verið sólríkir og er því leiðinlegt að geta ekki notið þeirra betur, en þegar svona veður kemur er aldrei meira að gera í vinnunni.  Nú er komin tími til að taka fram hjólin og skoða perlurnar sem eru nálægt manni.

Þó náðum við að grilla og breyttum sólpallinum í matsal um helgina, sá yngsti var ekki alveg að fatta þetta samt.

myndir_apr_l_2009_031_849199.jpg

Í kvöld fórum við tveir félagarnir í Frostaskjólið og sáum markalausann leik gegn Þrótti.

Mættum snemma til að ganga frá ársmiðum okkar og stúkusætum. Borðuðum svo í KR heimilinu fyrir leik.

Einhvernvegin spyr maður sig hvað er að þegar lið misnotar 14 hornspyrnur, 15 aukaspyrnur og tvo dauðafæri einn gegn markmanni. En einmitt þetta gerir knattspyrnuna skemmtilega.

Þó náðu mínir menn í Englandi að spila til sigurs. Svo finnst mér það endilega þurfa að koma betur fram þar sem bloggvinur minn ágætur fór grunsamlega fáum orðum um þann leik að mitt gamla félag KA á Akureyri gjörsigraði valdaklíkuna í þorpinu Þór.

Það kæmi mér ekkert á óvart að maður heyrði um að viðræður ættu sér stað um sameiningu liðanna. Það er þeirra svar við því þegar KA er komið með betra lið í einhverri grein,  samanber hanboltann.

 

Guðbjörn fékk nýtt hjól og bróðir hans tók við lyklunum af gamla faratækinu hans, sem reyndar systir hans sem orðin 10 ára fékk nýtt. Er maður orðinn svona......Nei,nei ég er ennþá kornungur!!

Þessi mynd var tekinn við þá hátíðlegu athöfn.

myndir_apr_l_2009_023.jpg

 


Björk Andersen.

Langar að setja link inn  á styrkatarsíðu hjá mikilli vinkonu mínni sem er með krabbamein. Þið getið lesið allt um hana hér og á  þessari síðu er linkur inn á bloggið hennar.


http://toffarinn.blog.is/blog/toffarinn/

 

 

 

 

 


Viljiði fara að grafa nafn KR í bikarinn.

Við skoruðum 3 mörk í svo miklum mótvindi að strákarnir gátu ekki verið með augun opinn allan seinni hálfleikinn, þess vegna voru menn ekki viss um hvort Diogo hefði skorað eða hvort Ramsey gert sjálfsmark.

Spiluðum sem sagt  með lokuð augun í 45 mín og unnum stórsigur.


mbl.is Gunnar Örn: „Þetta var okkar dagur “
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

GAMLI þÓRSARINN MÆTTUR.

Já góður sigur og nú er afar mikilvægt að fylgja þessu eftir, viljum ekki svona týpíska byrjun eins og síðastliðin 2 ár.

Enn ekki ætla ég að fara yfir gang leiksins mikið það er allstaðar hægt að sjá hann.

Enn gaman að koma í stúkuna aftur eftir vetrarfrí og Miðjan kom greinilega vel undan vetri, sungu og trölluðu frá byrjun og fengu alla til að standa upp og klappa Hélt samt að einhver nýjir textar yrðu sungnir.

Einnig létu menn vel í sér heyra í fyrri hálfleik þegar þeir voru óánægðir með frammistöðuna. Stúkan var farin að kalla á Gumma Ben um miðjan hálfleikinn. Drengurinn er bara guð í okkar augum. Reyndar voru mín fyrstu kynni af honum þegar hann lék með Þór á Akureyri og ég man vel hversu brjálaður ég var þegar drengurinn flutti suður og gekk í raðir Stjörnunnar.

Kaffið, Já kaffið var ekki í boði í hálfleik eins og alltaf og verður þú nú að framvísa gullkorti KR til að fá frítt kaffi, þetta finnst mér miður.

Enn það er hægt að fá  það keypt í sjoppunni, sem mér finnst reyndar alltaf jafn mikið til skammar. Hún er allt of lítil og biðröðin þannig að það nennir engin að bíða og missa af fyrstu mínutunum í seinni hálfleik. Það koma sjaldan undir 2000 manns á völlin og þetta þarf að laga. 

STÆRRI SJOPPU.

Mér fannst vænt um að sjá Björgólf fyrrum Landsbankakall koma á völlinn og setjast í stúkuna, það verður bara að fara á völlinn þó ílla gangi annarstaðar.

 


mbl.is Gummi Ben: Verðum að gera miklu betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband