Strákar rólegir....

Halló, Halló!!! Gleymum ekki að Kallinn á stóran hlut í KR. Það eitt og sér ætti að tryggja afkomu hans til lenggri tíma litið. Enda stórveldi.

Ef þú ert KR-ingur ertu á grænni grein.

kr_4stjornur_692622.jpg

 


mbl.is Ástand Landsbankans hefur ekki áhrif á West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bregðum blysum á loft.

                                                    

kr_blysin_689940.jpg

 

Langaði bara að sýna stuðningsmönnum annara liða sem eru annars svo frábærir í alla staði enda  stuðningsmenn alveg frábærra liða sem eru pottþétt með bestasta þjálfarann  hvernig á að fagna og búa til stemmingu.

Svona gera KR-INGAR en við erum náttúrulega ekki nærri eins flottir og öll hin liðin því þau eru svo yfirburða frábær.


KR og krakkarnir í Grafarvogi.

Mikið er um að vera hjá stórveldi KR um helgina og eru einir 3 bikarar í augsýn. Fyrst má talja upp úrslitaleik milli KR og Grindavíkur í bikarnum í körfu kvenna.

Svo er hið feikisterka lið KR í Körfu karla að spila á móti Keflavík í undanúrslitaleik í körfu.

Körfuknattleikslið KR er feikisterkt og langt síðan svona sterkt lið hefur verið að spila á Íslandi. Það er hrein unun að horfa á þá og maður skynjar að það er formsatriði að sigra íslandsmeistara titilinn. Heyrst hefur að litlu liðin út á landi séu með sértök myndbönd af liði KR til kennslu í litlu skólastofunum þeirra. Fleiri lið mættu taka þetta framlag norðanmanna upp.

Svo Dömur mínar og Herrar er úrslitaleikur milli KR og Fjölnis í bikarnum í knattspyrnu. Maður verður eiginlega að taka ofan fyrir Fjölnisdrengjunum að hafa náð svona langt og eiginlega vorkennir þeim að þurfa svo að spila við stórveldið til úrslita.

Ég reikna nú ekki með að unglingarnir í Fjölni nái að svo mikið sem að skora í þessum leik og þar sem allt stórveldið verður klárt og ekkert er um meiðsli vona ég eiginlega unglinganna vegna að KR skjóti þá ekki í kaf strax í fyrri hálfleik.

Þrátt fyrir að úrslitin séu nú þegar ráðin væri óneitanlega skemmtilegra ef krakkarnir í Fjölni spili heiðarlegan leik,  enn mæti ekki dýrvitlausir og sparki í allt sem hreyfist, það er nefnilega alltaf hættan þegar unglingar mæta sér sterkari og stærri mönnum.

Allir vita að KR hóf knattspyrnuiðkun fyrst alltra liða á Íslandi og eiga þar með íslandmet í að vinna íslandsmeistaratitilinn. Það er því mikill heiður fyrir unglingana í Fjölni að fá að spila svona leik og eiginlega eiga þeir að fá smá viðurkenningu bara fyrir það. T.d fótbolta frá HENSON eða eitthvað annað smálegt.

Einnig heyrði ég að leikmenn KR ætli að gefa leikmönnum Fjölnis eiginhandáritun eftirt leik, fallegt hugarfar það.

Ég hef svolitlar áhyggjur af veðráttunni í þessum leik því þegar þetta er skrifar er Laugardalsvöllur þakinn snjó. Eiginlega er það nóg fyrir krakkana í Fjölni að spila heilan leik á svona stórum velli úthaldslega séð svo ekki þurfi þeir að spila á vellinum hálum og í kulda. Þeir mega nefnilega bara nota 3 varamenn,  þó við KR- ingum væri slétt sama þó þeir notuðu alla krakkana í Grafarvogi, þá bara banna reglurnar það.

Enn mikið verður fallegt að sjá litlu krakkana úr fimleika og skautadeildinni með sleikjó og blöðrur styðja hina krakkan í fjölni. Alltaf gaman að sjá krúttlegan stuðning þó að á móti blási.

 

FJÖLNIR til hamingju með að fá að spila á móti STÓRVELDINU.

Góðar stundir.

 


mbl.is Bikarúrslitaleikur á grasi eða snjó?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gömlu KA kempurnar.

Hver sér eiginlega um auglýsingamálin hjá Akureyrarliðinu, langar að benda honum á að það er smá pláss fyrir....Nei það er ekkert meira pláss fyrir auglýsingar.

kaycuac.jpg

Svo má geta þess að Jónatan Magnússon KA maður skoraði flest mörk liðsins.

Góðar stundir.


mbl.is Fyrsti sigur Akureyringa er staðreynd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það kólnar og það þýðir aðeins eitt.

Nú fer að styttast í að sleðatímabilið hefjist,  búið er að setja í gang og fá bensínfnykinn í fötin aðeins að smakka, stefnt að Langjökli næstu helgi.

Að því tilefni langar mig að sýna ykkur eina flottustu sleðamynd sem tekin hefur verið í öllum heiminum.

Hún var tekinn í fyrra og þið megið geta hvar? Já þetta er kannski bara svona myndagetraun.

Crist hvað manni langar að þeysa af þegar maður rúllar í gegnum myndaalbúmið. 

Klikkið til að stækka.                                

Það er bara ein leið til að upplifa og það er að aka SKI-DOO                                 

img_4984_687190.jpg


Handboltinn búinn að vera.

Ein af ástæðum þess að ég gæti aldrei hugsað mér að flytja til Akureyrar aftur er einföld. Reyndar er bara ein ástæða fyrir því að ég ætla að setjast í helgan stein í henni Skitugu og menguðu Reykjavík.

Ástæðan er einfaldlega sú að búið er að sameina krafta ÞÓRS og KA handboltalega séð. Ég er búinn að horfa á þetta lengi og hélt að ég myndi sættast við þetta kjaftæði, enn nei, ALDREI!!!

Ég veit hver ástæðan er,  Þórsarar gátu aldrei neitt í handbolta og það náttúrulega þoldu þeir ekki til lengdar, Öll lið á Íslandi hræddust KA menn, rimmurnar milli Reykjavíkur risanna og kA manna urðu heimsfræagar, já vöktu heimsathygli og það þoldu Þórsarar náttúrulega ekki.

Einn af mörgum fundum var haldinn í þorpinu og launráð bruggað hvernig hægt væri að taka KA út af kortinu. Nú er samt lið Akureyrar að meginn upplagi byggt úr uppöldum KA mönnum enn alls fráleitt þykir að þeir fái að halda nafninu.

Akureyri skyldi liðið heita og skýrt tekið fram að um "sameiginlegt" lið Þórs og KA sé um að ræða.

Vilja þorpararnir ekki bara sameina lið Þórs og KA í körfunni?? Það gæti heiti: Þ.K. Nei, aldrei því ef það er einhver smá smuga að Þór myndi ná langt í körfunni er náttúrulega alveg ófært annað en Þór eigi það bara aleitt.

Nú veit ég að ágætur bloggvinur minn einn er alveg ósammála þessu og ber því örugglega við að þetta sé eins og með Glitni, það hafi bara þurft að hlaupa undir bagga.

Ég ætla ekki að horfa á einn einasta leik í vetur, ekki EINN!! Mér er alveg sama orðið um handbolta. Nú halda margir að þetta sé bara óþarfa skítkast hjá mér og ég viti bara ekki betur. Enn ég sæi umræðuna hér ef einhverjir kallar kæmu með þá hugmynd að sameina bara knattspyrnudeild Vals og KR. 


Rólegheit um helgina.

Þá er þessi helgin liðin og ný vinnuvika á næsta leiti. Ekki var beint farið í neinar stóraðgerðir heldu reynt að halda sér sem mest heima við.

Eitthvað aðeins var unnið, 1 stk matarboð og svo aðeins reynt að fylgjast með boltanum hér heima og erlendis.

Það er nú búið að fjalla svo mikið um þessa síðustu umferð í Landsbankadeildinni að ég ætla ekkert að fjalla neitt meira um þetta klúður allt saman.

Ég fór ekki á heimavöll þeirra Valsmanna til að fylgjast með liðinu mínu sigra þá, heldur var heima með yngsta syninum sem eldist með hverjum deginum og hélt upp á rúmlega 14 daga afmælið sitt. Við sátum í rólegheitum og fylgdumst með þessari síðustu umferð upp í sófa, hreiðruðum um okkur þar þannig að við ætluðum aldrei að nenna að standa upp. 

 

Við feðgar að fylgjast með boltanum.

drengur_luthersson.jpg

 

 

 

 

 

 

 

Letikastið náði svo hámarki þegar ég ákvað að fara í náttbuxurnar um kl 20 í kvöld. Nú er konan farin að poppa heyrist mér og ég ætla að stinga DVD mynd í tækið.

Góðar stundir.

 


KR sigurliðið í dag!!

Klúður?  Ég vill nú ekki sega að Keflvíkingar hafi endilega klúðrað þessu í síðasta leik. Það var alltaf vitað að það er hægt að tapa á móti Fram. (þó KR hafi ekki gert það í sumar)

Keflvíkingar  töpuðu í síðustu umferð á móti FH, þá höfðu Keflvíkingar ekki tapað síðan 23 Júní.

Samt sko.....æjii sleppum því.

Enn hins vegar veit ég að ef KR hefði gengið í gegnum það sama og Keflvíkingar í dag þá hefði spaugstofan verið hóuð saman eingöngu til þess að fjalla um stærsta klúður íslenskrar knattspyrnu fyrr og síðar í 3 þáttum.

Gleymum ekki að KR þurfti að vinna Val í dag til að ná 3 sætinu og evrópusæti, við vorum svo kollrólegir að við sendum 4 flokk á Hlíðarenda með leigubíl  til að klára þann leik. Við tryggjum okkur svo bara evrópusætið og bikar í næstu viku.

Sæl að sinni.


mbl.is Keflvíkingar töpuðu fyrir Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má maður halda með tveimur liðum á íslandi?

Mér finnst eðlilegt að maður haldi með liði á landsbyggðinni, reyndar fannst mér þetta alls ekkert svo sjálfsagt fyrir svo stuttu, til hvers að halda með einhverju liði sem átti ekki einu sinni löglegann völl hvað þá meira.

Svo er bara til eitt stórveldi og af hverju þá að vera að halda með einhverju öðru liði.

Enn svo sá ég svipmyndir af einu liði út á landsbyggðinni sem ég var bara búinn að steingleyma, AUÐVITAÐ er MAGNI GRENIVÍK mitt landsbyggðarlið, sjáiði búninginn maður!!!!

 

Hér má sjá leikmenn Magna fagna seinna markinu sem þeir skoruðu í sumar. (eða var þetta fyrra markið?) Samt er eins og annar sé að athuga púlsinn og hinn hjarsláttinn?? Enn hvað um það, ég er Magnaður KR-ingur!!

magni_grenivik.jpg


Bíðiði með að tippa, ég skal sega ykkur úrslitin.

Þetta er virkilega gaman að fá svona spennandi lokaumferð, ekki er bara spurning hver verði meistari heldur er risa slagur um 3 sætið.

Félagar mínir hafa verið að pumpa mig í gær og dag um hvernig þetta fari, ég þyki einstaklega getspakur og er búinn að vera afar heppinn undanfarið með spár mínar.

Þetta er einfalt í mínum huga og er spá mín á þessa leið:

Fram - Keflavík = x

Valur - KR = 2

Fylkir -  FH = 2

þetta þýðir einfaldlega að FH verður meistari og KR endar í 3 sætinu.

Ég var að rifja upp gengi Frammara í sumar. Skrítið það voru ótrulega margir sammála mér. Maður vissi eiginlega ekkert af Fram, það var bara einhvernveginn enginn að tala um Fram, ekki einu sinni frammarar sjálfir.  Enn allt í einu eru þeir bara í 3 sætinu?? Nú er bara ein umferð eftir og þeir eru eiginlega örlítið fyrir okkur KR-ingum.

Furðulegir.

 


mbl.is Atli Viðar: Get alveg séð fyrir mér að við hömpum titlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband