Mánudagur, 30.6.2008
Jú,jú.
Auðvitað hafa flestir bloggarar nákvæma vissu hvað gera eigi við þennan einstakling. Hann og fleiri sem hafa verið kallaðir vitfirringar, fyllibyttur, morðingjar og guð má vita hvað eru næstum réttdræpir á næsta götuhorni.
Eigum við ekki bara að biðja að hann nái bata og nái að stýra stýra lífi sínu á rétta akrein áður enn ílla fer.
Alkahólisminn er hættulegur sjúkdómur.
![]() |
Ofurölvi í sunnudagsbíltúr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 30.6.2008
SIGURRÓS - BJARKAR ÆÐIÐ HELDUR ÁFRAM.
Ég hef haldið því fram að það sé einhver ákveðin tíska að segast fíla Björk og Sigurrós. Ég hef spurt marga hvað það sé í tónlist Bjarkar sem heilli svona svakalega, þá koma svo fáranleg svör að hafandi er varla eftir. T.d. lagsmíðar, sviðsframkoma, söngröddin. Er eitthvað að þessum dæmum sem Björk er einstök í.
Fólk þekkir ekki einu sinni lögin hennar með nafni.
Fyndnast finnst mér þegar fólk fer að tala um fötin hennar. Enn Björk er alls ekki fallega klædd, hefur aldrei verið. Er einhver mamman hér sem vildi að dætur sínar tækju upp þann sið að kllæða sig og mála eins og Björk?
Því miður hefur Björk ekki eitthvað sem krakkar ættu að líta upp til og reyna að temja sér. Nema þá kannski ást á landinu, en það hafa allir.
Þið húsmæður sem komnar eru yfir léttasta skeiðið, Þið yngist ekkert eða gangið í augun á unglingum í dag þó þið segist fíla Björk og Sigurrós í ræmur.
Ég er alveg með það á kristal tæru að ef Rúnar Júll og Sverrir Stormsker hefðu átt að troða upp í Laugardal fyrir þessum málstað hefðu þeir fyllt dalinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 29.6.2008
SPILASTOKKUR ÍÞRÓTTATÆKI???
Heyrðu, þetta er BRIDDS, svo áður enn ég segi mikið meira um þessa frétt þá finnst mér stórfurðulegt að þetta sé inn í íþróttafréttum.
BRIDDS ER EKKI ÍÞRÓTT.
![]() |
Ísland náði ekki HM-sætinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 26.6.2008
Stöldrum aðeins við.
Var ekki í myndinni að setja svona aðsetur upp fyrir karlmenn, einhverstaðar við Eiriksgötu eða nágrenni?
Hvernig var tekið í það. Jú það varð allt gjörsamlega vitlaust og undirskrifasöfnun sett á laggirnar sem aldrei fyrr. Þetta þótti ógna svo mikið öryggi hverfisins að öruggast þótti að loka næsta nágrenni um ókomna tíð.
Enn þar sem drukknar konur eiga í hlut líta hlutirnir náttúrulega allt öðruvísi út.
![]() |
Vantar heimili fyrir konur í neyslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 25.6.2008
Samstaða um lægra eldsneyti????
Kíkið á þessa hugmynd. Ekki galið enn gert ráð fyrir að allir verði með.
http://tatum.blog.is/blog/tatum/entry/576217/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 23.6.2008
NÝJAR MYNDIR.
Ég vil benda aðdáendum fjöldskyldunnar að Hólabergi á nýtt myndaalbúm á þessari síðu sem ber nafnið SUMARIÐ 2008. þar koma til með að birtast myndir af þv helsta sem fjöldskyldumeðlimir koma til með að eyða sumrinu í.
Þar sem algerlega ógerlegt er að sega til um hvað fjöldskyldan tekur sér fyrir stafni er vert að fylgjast vel með. Þetta er nú einu sinni ekkert venjuleg fjöldskylda.
FYRSTU MYNDIR KOMNAR.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 21.6.2008
Fyrsti sláttur í Hólabergi.
Loksins gafst tími til að vinna garðverkin. þá kom líka þetta blíðuveður. Voru þau tekin með trompi og alvöru karlmansgræjur notaðar.
Á tímabili þegar stæðstu tólin voru tekin upp leituðu nágrannarnir í skjól en það eru náttúrulega bara rolur sem ráða bara við litlar skóflur.
Auðvitað bilaði sláttuvélin enda ekkert smá afl notað við aðgerðir, því var auðvitað reddað á nýju íslandsmeti.
Eins og sjá má alger óreiða.
Aðeins fyrir alvöru karlmenn.
Viðgerðarstopp, hægri afturöxul gaf sig.
Það þurfti öflugri tæki við erfiðustu kaflana.
Það eru bara ekkert allir svona góðir.
Þegar hér var komið við sögu var náð í leynivopnið,
þá fóru flestir nágrannar í skjól.
Afraksturinn gæti alið hest heilan vetur.
Massaður - Tanaður, Ekki reyna þetta heima.
Peyjarnir tóku verkið út og voru hrifnir.
![]() |
Gott veður um land allt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 22.6.2008 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 21.6.2008
NÝ BÓK- JEPPAFERÐIR UM HÁLENDIÐ.
Nú í kringum 20 júní var að koma ný bók eftir Jón G. Snæland sem ber heitið Jeppaferðir um Hálendið. Þeir sem hafa lesið síðustu bækur hans hreinlega verða að eignast þessa.
Þetta er bók sem allir jeppamenn/jeppakonur verða að eignast.
Þessi bók er kannski aðeins öðruvísi enn fyrri bækur Jóns að því leyti að þarna fer Jón yfir skemmtilegar ferðir í máli og myndum.
Ég hef ferðast mikið með Jóni undanfarin ár um hálendi Íslands og er ómetanlegt fyrir áhugamann um jeppaferðir og hálendi að fá að njóta fróðleiks hans.
Fyrri bækur Jóns Ekið um óbyggðir eru skyldueign í jeppanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 19.6.2008
Daninn góði dottinn "íða
Svo það verður erfitt að fá hann til baka með búrið. Hann er sjálfsagt á barnum að sega hetjusögur af sjálfum sér og reynir að lýsa þeirri hrikalegri lífshættu sem hann setti sig í hér á landi.
Ég meina Íslenskar löggur með haglabyssur og riffla? Skil bara ekki að daninn hafi komist af landi brott.
Ég er alveg með það á hreinu að ef Grænlending yrði sýnt úrvalið sem prýðir hillur Heiðrúnar myndi hann koma frítt til landsins og gefa okkur Íslendingum eitt af 1500 búrum sem liggja undir skemmdum á Grænlandi.
![]() |
Þriðji björninn á Hveravöllum? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 18.6.2008
Allt í rugli.
Afskaplega finnst mér skrítið hvað samgöngur lamast þó einn bíll lendi á hliðinni. Í þessu tilfelli lamaðist umferð um miklubraut alveg vestur í bæ, umferð úr Breiðholti og Kópavogi lá niðri, og allt virtist stjórnlaust í heila 5 klst.
Ég var á staðnum og sá að slökkvibílar ásamt nokkrum sjúkrabílum var lagt á akreinar sem lausar voru. Túnspildurnar sem liggja þarna að neðan eiga að notast til að keyra á þegar svona kemur fyrir.
Það er hægt að skipuleggja aðgerir betur enn svo að öll umferð borgarinnar liggi niðri í heilar 5 klst þó svona leiðindar atvik komi fyrir.
Hvernig væri að setja upp starfshóp sem vinnur að betri skipulagningu þegar svona kemur upp frekar enn að skipa starfshóp sem á að finna út hvernig er best að koma upp búri sem heldur ísbjörnum í skefjum.
![]() |
Búið að opna fyrir umferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)