Klukk, Klukk.

Ég hef tekið eina konu hér á blogginu fyrir og reynt að hjálpa henni eins og ég get í vandræðum hennar og hef ég lagt mig mikið frammi, tekið mér frí úr vinnu, frestað ferðalögum og fl. Svo launar hún mér öll þessi liðlegheit með því að klukka mig. Jæja DIDA hér eru einar 8 staðreyndir um mig.

 

1. Ég hef ekki ennþá girnst aðra karlmenn.

2. Ég kaupi mér sjaldan föt.

3. Ég set mig oft í fyrsta sæti (Gríðarlegur galli)

4. Ég á 6 bíla (kaupi frekar bíl en skópar)

5. Sjónvarpsófinn heillar meira enn eldhúsverkin. (Ég grilla á mínu heimili.)

6. Ég fæ mígrenisköst og uppgang ef ég kemst ekki á fjöll 1 sinni í mánuði.

7. Ég man afmælisdaga barna minna.

8. Ég horfði á fæðingu allra 3 barna minna, held maður venjist því aldrei.

 

Nú vita sem sagt allir hver ég er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín M.

Blehh... Klárlega lélegar syndir. Það er ekki synd að muna afmælisdag barna sinna.

Kannski ég ætti ekkert að vera að tjá mig, í ljósi þess sem ég á eftir að svara mínu klukki. 

Katrín M., 13.7.2007 kl. 09:00

2 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Ég tók þessu þannig að ég ætti að setja fram 8 staðreyndir um mig, Úff ef ég yrði hreinskilinog teldi upp 8 syndir yrði líklega lokað á mig hér.

S. Lúther Gestsson, 13.7.2007 kl. 12:18

3 Smámynd: Aðalheiður Ámundadóttir

Ahh ég skil

Aðalheiður Ámundadóttir, 16.7.2007 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband