Færsluflokkur: Bloggar

Stresshelgin að líða.

Nú er konan komin viku frammyfir, maður veit ekkert lengur hvernig maður á að haga sér. Á maður að þora að fara í vinnuna í dag? Á ég að fá einhvern til að leysa mig af á morgun? Ég sem hélt að ég hefði gert allt klappað og klárt fyrir viðburðin enn uppgvötvaði svo í morgun að ég gleymdi að fara í Jóa Útherja og fá KR peysu á peyjann. Eins gott að hún fæði ekkert fyrr enn á morgun allavega, held að Jói Útherji opni kl 10 í fyrramálið.

Fáránlegt kæruleysi að vera heldur ekki búinn að setja stærri dekk undir jeppann, veit ekki hvernig sá ófæddi tekur þessu.

Nú sitjum við öll familían og horfum á Latabæ, veit ekki hvort það geti flýtt fyrir fæðingunni. Glanni glæpur, og bæjarstjórinn í Latabæ hafa ekki beint róandi áhrif á konuna.

 

 


Ég get orðið orðlaus.

Síðast liðna vor lenti ég í því að vefja vélsleða utan um girðingu sem liggur niður með Langjökli að Hveravöllum. Þegar þetta gerðist var skollið á mikið myrkur og lágrenningur, Höggið sem sleðinn fékk á sig var töluvert mikið og var upplifunin eiginlega þannig að hreinlega hefði tundurskeyti lend á sleðanum.

Við þetta kastaðist ég ég af og rankaði við mér nokkra metra frá sleðanum, þarna fékk ég mikið höfuðhögg þar sem hjálmurinn minn skall utan í stóru grjóti. Hjálmurinn var ónothæfur á eftir.

Við félagarnir höfum verið að flytja sleða, kerrur og annan viðlegubúnað í nýtt húsnæði sem okkur áskotnaðist. Þar sem ég hef lítið getað tekið þátt í þessu með þeim sökum vinnu og aðstæðna heima fyrir var ég sendur með skömm til að ganga frá einum hlut í húsinu.

Þegar ég opna dyrnar eftir miðnætti, kveiki ljós og geng inn bíður kassi merktur mér fyrir innan dyrnar.

Í kassanum var splunkunýr hjálmur ásamt stórum miða sem á stóð:

ÞÚ ERT NÚ BARA EINS OG ÞÚ ERT, ENN VIÐ VILJUM HAFA HAUSINN Í LAGI ÁFRAM.

Þessir strákar hafa hjálpað mér gríðarlega mikið undanfarið, og eru reyndar enn að reyna að koma mér á fætur,  þó ekki eftir þessa veltu á jöklinum heldur í gengum mína erfiðleika.

Oft finnst mér ganga hægt og lítill tilgangur sé með þessu öllu enn það var ROSALEGT að sjá það svona að einhverjum finnst allavega smá vænt um mann.

Oft ætlar maður að vinna einn stóran sigur, enn ég hef lært að litlu sigrarnir verða að koma fyrst.

Strákar í þessu tilfelli  notast ég við nafnleyndina þó ég vilji skrifa nafn ykkar með risa stöfum.

Ég segi bara TAKK.


Braut odd af oflæti mínu.

Ég hef löngum þótt góður grillari, enda grillið mikið notað á mínu heimili. Hér þykir ekkert tiltökumál að fara út á sólpall í norðan stórhríð á veturna til að elda.

Hingað til hefur grillið og ásamt 3 fermetra radíus verið algerlega mitt einkasvæði og enginn hefur fengið að koma þar nálægt, enda grillið af Bandarískri gerð með 3 brennurum á tveimur hæðum. Fjöldskyldan hefur ætíð staðið í dyrunum full aðdáunar hvernig mér hefur tekist að töfra framm hverja stórsteikina á fætur annari.

Enn nú í kvöld fékk dóttirin að taka í herlegheitin í fyrsta skiptið, þetta þótti henni afar merkilegt enda grillið algerlega heilagt. agust_2008.jpg

Sjálfsagt reka einhverjar gamlar konur upp stór augu og hneykslast gífurlega yfir kæruleysinu að hleypa 9 ára gamalli stúlku í grill, enn mega þær þá vita að ég var staddur við hana allan tímann vopnaður duftslökkvitæki, eldteppi og síma.

Allt fór vel,

 


Úppps!!

Þess má einnig geta að Robinho mætti í þyrlu á fyrstu æfingu sína.

Enn þetta er náttúrulega rosalegt ef allar þessar stjörnur sem City menn eru að kaupa verða meira hjá sálfræðingi en á æfingum, yfir því að vera orðnir leikmenn Ding- Dong liðs. Það eru ekki einu sinni snagar í búningsherbergjum City.

Enn svona til að menn geti áttað sig á því sem þessar stórstjörnur eru að lenda í, er þetta svona svipað og Stefán Logi yrði seldur frá stórveldinu KR til ÞÓRS á Akureyri.

 


mbl.is Pele: Robinho þarf á sálfræðihjálp að halda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ERFITT KVÖLD.

Horfði á leik KR og Breiðablik í sjónvarpinu, já ég sat heima og horfði. Ástæðan?  jú konan er ekki ennþá búin að eiga. Enn það er svo stutt (kannski í nótt eða á eftir) að ég þorfði ekki að heiman.

Ég er svona að ná mér niður andlega eftir þetta kvöld, mikið hrikalega er búið að vera erfitt.

KR lentu marki undir, fengu á sig 13 hornspyrnur, björguðu 3 á línu, framlenging, vítaspyrnukeppni og konan blés allan tíman eins og hún væri að fara að eiga eftir eina mínútu.

 Enn KR vann og konan er sofnuð. Guð er góður.

 


Hitt og þetta.

Ég segi nú bara eins og allir aðrir hér á blogginu, það hefur hrjáð mig bloggleti undanfarna daga. (tískusetning).

Hef verið að dunda í hinu og þessu undanfarna daga, haldið mig þó fast í henni stórborginni enda konan að fara að eiga um helgina, nú ef ekki þá ætlar læknamafían að setja hana af stað á Mánudagsmorgun. Ætlaði að fara að spyrja konuna nánar út í þetta í gærkveldi hvernig fæðingin er sett á stað, en hætti svo við það,  grunar að mig langi ekki að vita neitt um það.

Nú þá er þetta 3 barn okkar konunnar og mitt 4, er það ekki bara komið nóg þá.  Ef ekkert forsetaefni leynist ekki í þessum barnaskara er það bara ekki mitt vandamál, ég reyndi þó.

Í útvarpinu áðan var verið að tala um offitu barna, hreyfingaleysi barna orðin það mikið vandamál að þau eru komin með hjól undir skóna sína þannig að þau þurfa ekki að ganga lengur. Hjól undir skóna? Þetta er eitthvað sem ég er að fara að finna út hvar ég fæ.

 Við félagarnir í sleðagenginu vorum að fá afhent húsnæði þar sem við getum verið með sleðana inni og dundað að þeim, frábær munur og gríðarlega flott fyrir næsta vetur, einn félaginn var að reyna að koma GPS tengingu fyrir hjá sér enn eitthvað mistókst það, svo hann sagðist ekkert þurfa þetta GPS dót, Ísland væri svo lítið að maður endaði alltaf einhverstaðar. Nokkuð til í þvíLoL.

 

 


ÞJÓÐHÁTÍÐ, MÁLUM ALLT RAUTT- ALLT

OK, nú finnst mér kominn tími til að leita skjóls. Herra Ólafur forseti hrópaði yfir þjóðina að nú skyldi verða þjóðhátíð, Frú Dorrit sagði við það sama tækifæri að Ísland væri "STÓRASTA" land í heimi. GETUR VERIÐ AÐ VIÐ SÉUM STÓRARI ENN VIÐ HÖLDUM?

Með þetta á bakinu flykktist hálf þjóðin í áfengisverslanir og hafa fyllt þær út úr dyrum síðasta sólarhringinn eins og enginn væri morgundagurinn. ÓLI SAGÐI ÞJÓÐHÁTÍÐ!!

Einn sagði við mig að eiginlega ætti bara að fresta menningarnótt, það er synd að þurfa að halda upp á þetta allt saman í einu þegar hægt er að dreifa þessu yfir eina viku.

"ÞJÓÐHÁTIÐ OG VIÐ STÓRASTIR"!!!! Þetta kallar bara á eitt, og einhvernveginn hef ég grun um að við munum taka afleiðingunum eitthvað framm eftir vikunni. 

 Ég persónulega hélt upp á þetta allt saman  hjá góðu fólki yfir risa grillveislu í gærkveldi þar sem á borðum var svinalundir, nautasteikur og Hrefnukjöt. Ég lét biðraðir hjá áfengisútsölum vera enda hættur að njóta þeirrar guða veigar sem þar fást.

Nú er verið að undirbúa flott morgunverðarborð til að njóta yfir síðasta leik okkar manna í fyrramálið. Þar verður enginn þunnur frekar enn yfir grillveislunni. 

Ef við vinnum frakkana þá mæli ég með að fjölmiðlabann verði sett á Herra Ólaf og Frú. 

 


mbl.is Tónleikar á Miklatúni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt að gerast.

Konan er ólétt og er sett 31 ágúst, því er hún orðin óróleg og er farin að tala um að það þurfi að fara að græja allt og gera áður en pilturinn kemur í heiminn. Ég er núna í þessum töluðu orðum að fara og kaupa málningu, snaga hilluefni og aðrar nauðsynjar í bílskúrinn.

AÐ sjálfsögðu verða svo vélsleðarnir nýbónaðir. Þetta verður að líta þokkalega út þegar maður röltir með peyjann yfir í skúrinn.

Já ég verð ofsalega upptekinn um helgina. 


NÝ LANDSLIÐSTREYJA?

Ég er búinn að láta hanna handa mér mína eigin íþróttabúning.  Ég gat bara ekki gert upp á milli Liverpool og KR enda 2 stórveldi.

2 aðilar neituðu að hanna mína hugmynd enn það var svo loks Halldór í HENSON sem bjó til treyju handa mér. 

Fyrir þá sem ekki sjá hvað er svona spes við þessa treyju er hér bæði um KR og Liverpool treyju að ræða. ágúst 2008 024ágúst 2008 026

Köllum þetta bara gott báðum megin.   


Tekið af fótbolta.net

Mourinho: Held að þetta verði ár Liverpool

Mynd: NordicPhotos

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Inter Milan og fyrrverandi knattspyrnustjóri Chelsea segir að Liverpool geti gert alvarlega atlögu að titilbaráttu þetta tímabilið.

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool hefur verið með liðið í rúm fjögur ár núna og segir Mourinho að Benitez hljóti að vita veikleika liðsins og hafi náð að laga þá.

,,Það er kominn tími fyrir Liverpool að gera eitthvað í úrvalsdeildinni. Ég held að þetta gæti orðið ár Liverpool," sagði Mourinho.

,,Rafa Benitez kom til Englands á sama tíma og ég og er að hefja sitt fimmta tímabil hjá félaginu. Hópurinn samanstendur enn af sömu leikmönnum og síðustu fjögur ár."

,,Veikleikar liðsins hljóta að hafa verið ugggötvaðir og reynt hefur verið að laga þá."

,,Það er ómögulegt að vinna deild án þess að hafa heimsklassa markmann og heimsklassa framherja. Liverpool hefur bæði. Fyrir síðasta tímabil þegar að Liverpool keypti Fernando Torres varð kjarni liðsins fullkominn, Pepe Reina, Jamie Carragher, Steven Gerrard og Torres."

 

ÞETTA HELD ÉG AÐ SÉ RÉTT HJÁ HONUM. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband